Category Archives: Glerárprestakall

Vegur krossins – íhugunarstund á föstudeginum langa

Vegur krossins er íhugunarstund. Lesið er úr píslarsögunni og vers úr passíusálmum Hallgríms Péturssonar, fylgt er íhugun úr Bænabók Karls Sigurbjörnssonar biskups um 14 stöðvar píslargöngunnar meðan listaverk birtast sem túlka hana frá ýmsum tímum og stöðum. Prestar: Sr. Sindri Geir Óskarsson og sr. Guðmundur Guðmundsson leiða stundina. Organisti er Valmar Väljaots, Kór Gerárkirkju syngur.föstudagurinn langi 2021 Hér má ná

Lesa meira

Skirdagskvöld í Glerárkirkju

Á skírdagskvöldi er minnst síðustu kvöldmáltíðarinnar. Komið er saman við borði Krists og þau sem vilja neyta kærleiksmáltíðar geta haft brauð, vín eða berjasaft og kerti til reiðu og brotið brauðið heima hjá sér. Kór Glerárkirkju flutti sálma undir stjórn Valmars Väljaots, sr. Sindri Geir Óskarsson leiddi stundina. Undir lokin var altarið afskrýtt og undirbúinn föstudagurinn langa.

Lesa meira

Helgihald um bænadaga og páska í streymi frá Akureyrarkirkju og Glerárkirkju

Það verður streymt frá Akureyrarkirkju og Glerárkirkju nú um páskana, stundirnar verða svo aðgengilegar á vefnum næstu daga á eftir: Skírdagskvöld 1. apríl: Kvöldmessa frá Glerárkirkju kl. 20, altarið afskrýtt. Prestur sr. Sindri Geir Óskarsson. Organisti er Valmar Väljaots, Kór Gerárkirkju syngur. facebook/Glerarkirkja (https://www.facebook.com/glerarkirkja) og á facebook/Þjóðkirkjan á Norðausturlandi Föstudagurinn langi 2. apríl: Vegur krossins og íhugunarstund kl. 14. Lesið

Lesa meira

Aðventustund með óskalögum frá Glerárkirkju á 4. sunnudegi í aðventu

„Takk fyrir að bjóða okkur heim í stofu í kvöld“, þannig ávarpaði sr. Sindri Geir okkur í streymisupptöku í gær á aðventustund með óskalögum, á 4. sunnudegi í aðventu. Margrét, Valmar og Petra leiddu helgistundina á 4. sunnudegi í aðventu og ólíkt hefðbundnum stundum í kirkjunni þá fengu áheyrendur að ráða tónlistinni þetta kvöld. Að stundinni koma, Valmar Väljaots, Margrét

Lesa meira

Helgistund um gleðina með Krossbandinu

„Gleðin er alvörumál himinsins“ – C.S.LewisSr. Jóhanna Gísladóttir og sr. Guðmundur Guðmundsson leiða í kvöld helgistund þar sem þemað er gleðin sjálf. Krossbandið sér um tónlistina en það er skipað Snorra Guðvarðssyni, Ragnheiði Júlíusdóttur og Stefáni Gunnarssyni í kvöld. Tónlistin er fjölbreytt, en tal, tónar og myndir ýta undir umræðuefni kvöldsins.Guð gefi ykkur góða viku. https://fb.watch/1mP0nslxRN/

Lesa meira

Bleik messa í streymi frá Akureyrarkirkju 18. okt. kl. 20

Sunnudaginn 18. október kl. 11.00 verður boðið upp á streymi frá sameiginlegum sunnudagaskóla Akureyrarkirkju og Glerárkirkju. Streymt verður á facebook-síðum kirknanna.Þennan sama dag verður streymt frá Akureyrarkirkju kl. 20.00 í gegnum facebook, Bleikri helgistund í tilefni af bleikum október. Prestar eru sr. Jóhanna Gísladóttir og sr. Sindri Geir Óskarsson. Eyþór Ingi Jónsson og Birkir Blær Óðinsson sjá um tónlistina. Hildur Eir

Lesa meira

Kyrrðarstund streymt á hvítasunnudag frá Glelárkirkju kl. 20

Kyrrðarstund kvöldsins er öllum opin en verður einnig streymt í beinni á facebook/Glerárkirkja, stundin hefst kl. 20:00. Sr. Sindri Geir Óskarsson, sr. Guðmundur Guðmundsson og Hildur Hauksdóttir leiða stundina. Félagar úr kirkjukórnum undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur, organista, syngja hvítasunnusálma og kvöldsöngva. Hugvekjan fjallar um tvo steinda glugga í kirkjuskipinu eftir Leif Breiðfjörð og hvernig þeir tengjast heilags anda hátíð.

Lesa meira

Uppskerustund barnastarfsins í Glerárkirkju streymt á hvítasunnudag

Í ár var engin vorhátíð barnastarfsins í Glerárkirkju, í staðin var sett saman þessa útsendingu. Barna- og æskulýðskórinn syngja:Ver mér nær, Sautjánþúsund sólargeislar, Fætur mínir, Sokkablús og Undir sömu sól og mána.Margrét Árnadóttir söngkona stýrir kórnum og Valmar Väljaots leikur á hljómborð. TTT starfið flytur leikrit um hvítasunnudag með aðstoð unglinga úr UD-Glerá starfinu.Glerungar halda upp á afmæli kirkjunnar – því

Lesa meira
« Eldri færslur Recent Entries »