Tag Archives: Auglýsingar

Kirkjuþing nýafstaðið, 11. – 15. nóv. sl.

Kirkjuþingi 2017 var frestað í dag (15. nóv). Bráðabirgðagerðir eru aðgengilegar hér. Öll mál þingsins voru afgreidd utan þrjú sem verða til umfjöllunar í næstu þinglotu, sem reikna má með að verði á fyrri hluta næsta árs. Þessi þrjú mál eru tillaga til þingsályktunar um frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga, tillaga til þingsályktunar um frumvarp til laga um úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar og tillaga til

Lesa meira

Söfnun fermingarbarna vegna vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar

Dagsetningar fyrir fjáröflun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar var 6. – 10. nóvember 2017. Söfnunin gekk vel og söfnuðu fermingarbörnin í Glerárkirkju 340.646 kr. Er þeim og öðrum sem tóku þátt í söfnunni þakkað fyrir þátttökuna. Þetta var 19. árið í röð sem söfnunin fór fram. Það var áfram safnað fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfsins í Afríku (Eþíópíu). Hér má sjá lengra myndbandið (um 14 mínútur

Lesa meira

Landsmót æskulýðsfélaga á Selfossi var helgina 20-22. okt. – upptökur frá mótinu

Nú stendur landsmót æskulýðsfélaga yfir. Hæfileikakeppni hefur verið vinsæl á mörgum landsmótum. Hún var send beint út á facebook-síðunni kirkjan. Þar má sjá keppnina. Landsmótið á facebook. Hér má horfa á keppnina: Sr. Eva Björk Valdimarsdóttir flutti fræðsluerindi sem fylgjast má með hér.

Lesa meira

Kirkjan mætir kvíða

Kirkjan mætir kvíða – bænaslökun í Akureyrarkirkju á mánudögum kl. 20.00. Stundin er 45 mínútur. Sr. Hildur Eir Bolladóttir talar um trú sem bjargráð við kvíða og Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir jógakennari leiðir Gongslökun. Viðstaddir velja um að sitja á kirkjubekkjum eða liggja á gólfi en þá er gott að taka með sér dýnu að heiman. Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.

Lesa meira

Tímabil sköpunarverksins – ráðstefna Alkirkjuráðsins um umhverfismál 11.-13. okt. á vef kirkjunnar

Þjóðkirkjan á Íslandi beinir sjónum sínum að umhverfismálum sérstaklega tímabilið 1. sept. til 4. okt. Alkirkjuráðið í samvinnu við þjóðkirkjuna mun standa fyrir ráðstefnu 11. -13. okt. Mun þessir aðilar taka virkan þátt í Norðurslóðaþinginu dagan 13.-15. okt. Biskup Íslands hvetur söfnuði til aðgerða og samfélagið allt: „Nú þurfa orð að verða að verkum og þar getur kirkjan skipt sköpum.“ 

Lesa meira

Á þjóðkirkjan að berjast fyrir mannréttindum – erindi dr. Hjalta Hugasonar

Í vor voru fræðslu- og umræðukvöld í Glerárkirkju undir yfirskrifinni Sístæð siðbót. Dr. Hjalti Hugason flutti þar erindið: Sístæð siðbót og frelsishugsjónir nútímans: Á þjóðkirkjan að berjast fyrir mannréttindum?  Í erindinu voru hugmyndir samtímans um mannréttindi skoðaðar út frá sjónarhorni lúthersku þjóðkirkunnar. M.a. var spurt hvort þjókirkjan ætti að tala máli mannréttinda og hvernig almenn mannréttindabarátta gæti samrýmst kenningum og

Lesa meira

Ró í hjarta – kyrrðarstund í Glerárkirkju fyrir 16-20 ára á þriðjud. kl. 21

Ertu 16 – 20 ára? Þarftu smá pásu? Ró í hjarta eru stuttar kyrrðarstundir í Glerárkirkju öll þriðjudagskvöld (byrjar 3. okt.) 21:00 – 21:30. Tveir leiða stundina og nýjir í hvert skipti. T.d. Birkir Blær & Sindri, Hjalti & Lára. Kostar ekkert. Sumir þurfa mótvægi við stress og álag í sínu lífi. Sumir vilja bara hafa kósý og hlusta á

Lesa meira

Fræðslukvöld í Glerárkirkju í október – kynning

Um árabil hefur Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi í samstarfi við Glerárkirkju staðið fyrir fræðslukvöldum á hverju misseri fjögur til átta miðvikudagskvöld.  Tilgangurinn með þeim hefur verið að skapa vettvang til samtals um kirkju og kristni og hafa kvöldin verið ókeypis og opin öllu áhugasömu fólki, en beðið hefur verið um frjáls framlög í kaffisjóð. Dagskráin hvert kvöld hefur tekið tvær klukkustundir

Lesa meira

Hjálparstarf kirkjunnar birtir starfskýrslu sína 2016-2017

Starfskýrsla Hjálparstarfs kirkjunnar 2016-2017 er komin út og gefur góðar upplýsingar um starfið á árinu. Aðalfundur Hjálparstarfsins verður laugardaginn 23. september í Reykjavík. Prófastsdæmið og nokkrir söfnuðir á Norðaustulandi eiga fulltrúa á fundinum. Sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur, og Finnur Baldursson, eru fulltrúar prófastdæmisins og taka gjarnan við ábendingum fyrir fundinn. Skýrslan á Pdf-formi. Formáli úr starskýrslunni – Aðstoð í neyð og

Lesa meira

Framkvæmdastjóri Lútherska heimsambandsins um frelsið

Ekki þarf maður að lifa á sérstökum tímum, né heldur á einstökum stað til að meðtaka góðu fréttir Guðs sem hefur valið að gefa tóninn fyrir samúð, samstöð, réttlæti og frið í heiminum. — Framkvæmdastjóri Lútherska heimsambandsins Dr Martin Junge  Það sagði hann í ræðu sem hann flutti við messu í tilefni af 500 ára afmæli siðbótarinnar og 50 ára afmæli

Lesa meira
« Eldri færslur Recent Entries »