Category Archives: Fræðsla

Fasta fyrir umhverfið – fyrsta fræðslu og mumræðukvöldið í Glerákirkju 14. febrúar kl. 20

Fyrsta fræðslukvöldið er núna á miðvikudaginn 14. febrúar kl. 20. Staða umhverfismála á Akureyri er uppistöðu erindi kvöldsins, hvar erum við sem samfélag og hvert erum við að fara. Það er nú ekki langt síðan Glerá var gul, rauð, græn eða blá eftir því hvernig efni var verið að vinna með í verksmiðjunum, við höfum breytt hugsun okkar og umgengni

Lesa meira

Kyrrðarbæn í kapellu SAk á miðvikudögum kl. 17

Hefur þú áhuga á að kynnast kristinni íhugun? Alla miðvikudaga kl. 17.00 hittast iðkendur Kyrrðarbænar (Centering Prayer) í kapellu sjúkrahússin á Akureyri. Kyrrðarbænin byggir á aldagamalli hefð sem endurvakin var upp úr 1970 og hefur síðan verið að ná sífellt meiri útbreiðslu um heiminn. Kyrrðarbænin er ljúf nálgun við Guð þar sem orð eru óþörf. Við kyrrum hugann, opnum hug

Lesa meira

Kyrrðarbænin og íhugun – Erindi sr. Guðrúnar Eggertsdóttur

Leiðbeiningar um íhugun, kyrrðarbænin kennd og æfð Fyrirlesari: Guðrún Eggertsdóttir Guðrún kenndi að þessu sinni grunnnámskeið í kyrrðarbæn. Fleiri fræðarar hafa kennt það námskeið. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni http://www.kristinihugun.is. Það er tveggja kvölda námskeið og teknar frá 20-30 mínútur í lokin í íhugunarstund. En tvö erindi Guðrúnar er í safni prófastsdæmisins sem eru ágætar kynningar á þessari íhugunarleið.

Lesa meira

Gengið í föstu – Erindi sr. Þorgríms Daníelssonar

Leiðbeiningar um föstuhald sem lífsleikni og andleg þjálfun. Meinlætalíf eða gott og heilbrigt líferni. Fyrirlesari: Þorgrímur Daníelssons, sóknarprestur á Grenjaðarstað 1. hluti: Inngangur, um föstu og grundvallaratriði hennar Í upphafi talaði Þorgrímur um áhyggjur sínar af efnishyggju nútímans og bresti í siðferðilegu lífi. Þá snéri hann sér að föstunni. Hann sagði að kennslu hefði hann fengið í rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni í

Lesa meira

Fasta fyrir umhverfið

Þá er Fasta fyrir umhverfið komið á netið. Það er 40 daga áskorun um að draga úr vistsporinu og eiga umhverfisvænni hversdag. Hugmyndin Leystu eitt lítið verkefni á dag frá öskudegi fram á páskadag tengt ólíkum þemum, m.a. neyslu, mataræði og plastsóun. Sköpum okkur nýjar og umhverfisvænni venjur! Til að ná að standa við Parísarsamkomulagið þurfum við öll að leggja okkar að mörkum

Lesa meira

Guðshús nýrra tíma

Erindi Péturs H. Ármannssonar Guðshús nýrra tíma flutt 9. des. 2017 í tilefni af 25 ára vígsluafmæli Glerárkirkju. Undirtitill Glerárkirkja og byggingarsaga. Í erindinu rakti Pétur H. Ármannsson byggingarsögu steinsteyptra kirkna á Íslandi á 20. öld og endaði með að draga áherslurnar í kirkjubyggingarsögu aldarinnar saman í umfjöllun um Glerárkirkju. Hann fjallaði um kirkjubyggingar Rögnvalds Ólafssonar eins og Húsavíkurkirkju, Guðjóns

Lesa meira

Sr. Guðmundur Guðmundsson fjallar um Persónulega trúarreynslu og daglegt líf

Á fræðslu- og umræðukvöldi í Glerárkirkju miðvikudaginn 8. nóvember kl. 20 verður Persónuleg trúarreynsla og daglegt líf viðfangsefnið. Sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur, verður með erindi og glímir við eftirfarandi spurningar: Hvað er svona merkilegt við það að vera trúaður og að biðja? Hvernig varð trúarreysla Lúthers og uppgötvun hans á fagnaðarerindinu mótandi fyrir bænalíf einstaklinga í siðbótarkirkjunni? Hvernig verður trúin einstaklingsbundin

Lesa meira

Sr. Karl Sigurbjörnsson biskup fjallar um sögu siðbótarinnar og kynnir nýja bók sína

Á fræðslu- og umræðukvöldi í Glerárkirkju miðvikudaginn 1. nóvember kl. 20 verður Saga siðbótarinnar og evangelísk lútherska kirkjan í dag viðfangsefnið. Sr. Karl Sigurbjörnsson, biskup, verður með erindi en bók eftir hann sama efnis er nýútkomin Lúther, ævi – áhrif – arfleifð. Spurningar kvöldsins eru: Hvaða þýðingu hefur siðbótarmaðurinn Marteinn Lúther fyrir kirkjuna sem er kennd við hann? Hvernig er saga

Lesa meira

Gunnar J. Gunnarsson prófessor á menntasviðið HÍ fjallar um fræðslustefnu siðbótarinnar

Á fræðslu- og umræðukvöldi í Glerárkirkju 25. október kl. 20 verður Fræðslustefna siðbótarinnar sístætt verkefni tekið til umræðu. Það er dr. Gunnar J. Gunnarsson, formaður siðbótarnefndarinnar og prófessor við menntasið Háskóla Íslands, sem flytur erindi og leitast við að svara spurningunum: Hvaða áherslur lögðu Lúther og samstarfsmenn hans á fræðslu og hvernig mætti útfæra þær í kirkjunni í dag? Hvernig

Lesa meira

Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup, fjallar um helgihald á umræðukvöldi í Glerárkirkju 18. okt. kl. 20

Á fræðslu- og umræðukvöldi í Glerárkirkju 18. október verður efnið Guðsþjónusta siðbótarkirkjunnar og endurnýjun hennar. Fólk í kirkjukórum héraðsins og kórstjórar eru sérstaklega hvött til að mæta. Það er sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti og formaður helgisiðanefndar, sem flytur erindi og leitast við að svara spurningunum: Hvaða breytingar urðu á helgihaldi kirkjunnar með siðbótinni? Er áherslan á Guðs orð (og útleggingu þess)

Lesa meira
« Eldri færslur Recent Entries »