Author Archives: Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur

Foreldramorgnar í Akureyrarkirkju hefjast 2. september

Alla miðvikudagsmorgna er Safnaðarheimilið opið fyrir foreldra með ungabörn sína. Við opnum kl. 10:00 og erum við leik og spjall til 12:00. Stundum fáum við einhverja fyrirlestra og fræðslu og er það auglýst sérstaklega. Léttar veitingar eru í boði, leikföng fyrir börnin og notalegt andrúmsloft. Vel er hægt að virða 2ja metra regluna þar sem við höfum nægt pláss.  Verið

Lesa meira

Barnakórastarf Akureyrarkirkju hefst 3. september

Sigga Hulda og Sigrún Magna ætla að hafa gríðarlega skemmtilegar æfingar í vetur og hafa skipulagt eitt og annað skemmtilegt. Yngri barnakór (2.-4. bekkur) æfir frá 14:00-14.50Eldri barnakór (5.-8. bekkur) æfir frá 15:00-15:50Þátttaka er ókeypis og með því að smella á ,,Skráning í barnakórastarf“ fremst á heimasíðunni getið þið skráð ykkur í kórinn.Nánari upplýsingar fást með því að senda póst á

Lesa meira

Kyrrðarstund streymt á hvítasunnudag frá Glelárkirkju kl. 20

Kyrrðarstund kvöldsins er öllum opin en verður einnig streymt í beinni á facebook/Glerárkirkja, stundin hefst kl. 20:00. Sr. Sindri Geir Óskarsson, sr. Guðmundur Guðmundsson og Hildur Hauksdóttir leiða stundina. Félagar úr kirkjukórnum undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur, organista, syngja hvítasunnusálma og kvöldsöngva. Hugvekjan fjallar um tvo steinda glugga í kirkjuskipinu eftir Leif Breiðfjörð og hvernig þeir tengjast heilags anda hátíð.

Lesa meira

Uppskerustund barnastarfsins í Glerárkirkju streymt á hvítasunnudag

Í ár var engin vorhátíð barnastarfsins í Glerárkirkju, í staðin var sett saman þessa útsendingu. Barna- og æskulýðskórinn syngja:Ver mér nær, Sautjánþúsund sólargeislar, Fætur mínir, Sokkablús og Undir sömu sól og mána.Margrét Árnadóttir söngkona stýrir kórnum og Valmar Väljaots leikur á hljómborð. TTT starfið flytur leikrit um hvítasunnudag með aðstoð unglinga úr UD-Glerá starfinu.Glerungar halda upp á afmæli kirkjunnar – því

Lesa meira

Helgistund frá Þorgeirskirkju á almennum bænadegi 17. maí kl. 17

Krossinn við Þorgeirskirkju við Ljósavatn

Helgistund í Þorgeirskirkju verður send út á almennum bændegi 17. maí kl. 17 á visi.is og facebook/Laufásprestakall Eyjafjarðar- og Þingeyjarpsrófastsdæmi. Prestur: Gunnar Einar Steingrímsson Organisti: Dagný Pétursdóttir Félagar úr kór Ljósavatns-, Háls- og Lundarbrekkusókna syngja sálmana Dag í senn og Þú ert Guð sem gefur lífið

Lesa meira

Helgistund frá Húsavíkurkirkju á mæðradaginn 10. maí kl. 17

Á fimmtudaginn 7. maí var tekin upp helgistund í Húsavíkurkirkju sem streymt verður á Vísir.is í dag 10. maí klukkan 17.00. En síðustu vikur hefur verið streymt þaðan helgistundum frá ýmsum kirkjum og viðtökur verið góðar. Þetta er ánægjulegt samstarfsverkefni og hefur verið uppörvandi fyrir kóra og presta að fá að taka þátt í þessu framtaki. Við viljum þakka Sólveigu

Lesa meira

Sunnudagaskólinn sendur heim 3. maí

Í dag sendum við sunnudagaskólann heim í síðasta sinn í bili. Þetta er skemmtilegur og fróðlegur sunnudagaskóli með Matthildi, Davíð, Berglindi Höllu, Henning Emil og Jóhönnu Guðrúnu. Með þeim eru þrjár litlar stelpur sem eru venjulega duglegar að mæta í sunnudagaskólann. Ekki missa af þessum fjöruga og fræðandi sunnudagaskóla með söng, biblíusögum og bænum. Syngið, dansið og njótið. Góða skemmtun!

Lesa meira
« Eldri færslur Recent Entries »