Category Archives: Pistill dagsins

Ekkert barn útundan – Haustsöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar

Hjálparstarf kirkjunnar hefur hafið fjársöfnun til stuðnings við efnalitlar fjölskyldur í upphafi skólaárs. Skólataska, vetrarfatnaður, skór og stígvél, allt kostar þetta peninga svo ekki sé minnst á útgjöld vegna íþrótta- og tómstundastarfs sem falla til á haustin sem og kostnað vegna námsgagna þar sem greiða þarf fyrir þau. Foreldrar grunnskólabarna sem búa við kröpp kjör leita um þessar mundir stuðnings

Lesa meira

Stefanía Steinsdóttir, nýr prestur í Glerárkirkju, verður vígð á Hólahátíð

Nýr prestur var kjörinn við Glerárkirkju í júlí síðastliðnum. Sú sem varð fyrir valinu er Stefanía Guðlaug Steinsdóttir, sem nýlega lauk mag. theol. prófi frá Háskóla Íslands. Hún er Eyfirðingur að ætt og uppruna og hefur undanfarið starfað sem æskulýðsfulltrúi í Neskirkju í Reykjavík.  Stefanía er 37 ára gömul, eiginkona hennar er Hrafnhildur Eyþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og djákni. Stefanía kemur í stað sr. Jóns Ómars Gunnarssonar sem

Lesa meira

Ávarp biskups frá Suður-Afríku á kirkjudegi í Wittenberg

Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup á Hólum vekur athygli á ræðu anglikanska erkibiskupsins í Suður Afríku. En hann ávarpaði útisamkomu við ána Elbu sl. sunnudag 28. maí rétt hjá Wittenberg þar sem Höllin þar blasti við en Lúther á að hafa neglt mótmælagreinar sínar á hallardyrnar. Vígslubiskup var fulltrúi þjóðkirkjunnar á kirkjudögunum sem minntust siðbótarinnar. The Reformation was a defining

Lesa meira

Kirkjan okkar – kirkja komandi kynslóða – Svalbarðskirkja í 60 ár

Sr. Bolli Pétur Bollason í Laufási skrifar þennan pistil í tilefni af 60 ára afmæli sem haldið verður upp á með hátíðarguðsþjónustu í Svalbarðskirkju 28. maí kl. 14:00. Þar mun biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir prédika. Svalbarðskirkja Svalbarðsströnd var vígð 30. maí árið 1957 og er því 60 ára á þessu ári. Fyrir áratug síðan þegar Svalbarðskirkja varð hálfrar

Lesa meira

Af heimsþingi Lúterska heimssambandsins í Namibíu

Lúterska heimssambandið heldur nú 12. heimsþing sitt, sem er að þessu sinni haldið í Windhoek, Namibíu, dagana 10.-16. maí 2017. Auk venjulegra fundarstarfa er því fagnað að 500 ár eru liðin frá upphafi siðbótarinnar. Í tengslum við heimsþingið voru haldin svokölluð forþing (pre-assembly) þar sem ungmenni og konur réðu saman ráðum sínum til finna þar farveg  til þess að skýra enn

Lesa meira

Kirkjublaðið: Þjóðkirkjan á Norðausturlandi

Hér sérðu kirkjublaðið Þjóðkirkjan á Norðaustulandi eða Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis. Það hefur lengi verið í umræðunni að prófastsdæmið gæfi út fréttablað en nú er það auðveldara í framkvæmd og ódýrara þegar ekki er lengur ástæða til að prenta blað. Fréttablaðið hefur að markmiði að skapa umræðuvettvang um kirkjumál og endurspegla kirkjustarfið á svæðinu. Þeir sem vilja koma efni á framfæri eða ábendingum

Lesa meira

Kirkjulistavika Akureyrarkirkju 21.-30. apríl

Þann 21. apríl hefst hin skemmtilega Kirkjulistavika sem nú er haldin í 15. skipti í Akureyrarkirkju, en hátíðin hefur verið haldin annað hvert á frá árinu 1989. Kirkjulistaviku lýkur þann 30. apríl en framundan er heil vika full af fjölbreyttum viðburðum þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Helstu markmið Kirkjulistaviku hafa frá upphafi verið að

Lesa meira

Gefum þeim séns!

„Hvað mig dreymir um? Að geta séð fyrir mér öðruvísi en með því að stela. Ég vil ekki lenda í fangelsi. Mig langar til að geta unnið sem rafvirki,“  sagði Kenneth Buwenbo, 16 ára gamall drengur í samtali við Bjarna Gíslason framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar í mars síðastliðnum. Kenneth tekur nú þátt í Kampalaverkefni Hjálparstarfsins og lærir að gera við tölvur. Hann gerir sér

Lesa meira

Jesús fer á hátíð Jerúsalem til

Barnasálmurinn: Jesús fór á hátíð, er viðeigandi á pálmasunnudegi. Ég lauk við hann fyrir nokkru en eldri þýðingu gerði ég þegar ég var æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar (1987-1988). Lagið eftir Harald Herresthal. Oft er það nú svo að barnasálmarnir eru ekki síður talandi til fullorðinni vegna þess að þá reynir höfundurinn að skrifa fyrir barnið. Þetta er ágætur inngangur í upphafi dymbilvikunnar, þegar

Lesa meira
Recent Entries »