Category Archives: Helgihald

Helgistund á föstudaginn langa frá Glerárkirkju var í beinni

Helgistundin í dag er svolítið öðruvísi, það er mikill lestur og mikill söngur og svo framkvæmum við smá gjörning á altarinu. 🙏🌿🌾☀ Píslarsagan eins og hún kemur fyrir í Markúsarguðspjalli er lesin í heild sinni í þrem hlutum, eftir hvern lestur syngja Margrét, Petra og Valmar erindi úr sálmi Davíðs Stefánssonar, föstudagurinn langi. Þá syngja þau fyrir okkur tvo sálma

Lesa meira

Helgistund í Glerárkirkju á skírdegi var í beinni útsendingu

Í dag er skírdagur þegar við minnumst síðustu kvöldmáltíðarinnar. Stund dagsins er frekar hefðbundin, það er við hæfi að fara í gegnum kvöldmáltíðarhluta messunnar á þessum degi og í lokin afskrýðum við altarið og sveipum það svörtum dúk sem hylur altarið fram á föstudaginn langa. Séra Sindri Geir og Sunna Kristrún djákni halda utan um stundina, Valmar Väljaots, Margrét Árnadóttir

Lesa meira

Helgistund frá Akureyrarkirkja á pálmasunnudag

Helgistund frá Akureyrarkirkju á pálmasunnudag. Sigrún Magna Þórsteinsdóttir leikur á orgelið. Sr. Jóhanna Gísladóttir, sóknarprestur í Laugalandsprestakalli, flytur hugvekju og bæn. Og kórfélagar syngja sálminn nr. 861 í Sálmabók kirkjunnar. Sálmur 861 Kom, voldugi andi, og vertu hjá mér, veittu mér frelsið og styrkinn frá þér, fylltu mig kærleik sem Kristur mér gaf. Ó, lauga mig lífsvatni þínu! Viðlag: Kristur

Lesa meira

Helgistund frá Glerárkirkju á pálmasunnudag

Það er pálmasunnudagur og kirkjan er fólkið!🌴🌴🌿🌿 Fyrst fólkið getur ekki komið til kirkju þá bauð Glerárkirkja þeim sem vildu taka þátt í að leiða stundina að senda myndbönd af sér lesa texta og bænir. Svo þegar upp var staðið þá eru það ekki bara prestarnir Sindri og Stefanía sem leiða stundina, eða tónlistarfólkið Margrét og Valmar, heldur eru það

Lesa meira

Helgistund á netinu frá Glerárkirkju og Akureyrarkirkju sunnudaginn 22. mars

Helgistund yfir netið frá Akureyrar- og Glerárkirkju. Kynning af facebook/glerarkirkja: Í þessu óvenjulega ástandi þurfum við sem kirkja að finna nýjar leiðir til að koma saman. Þessa dagana erum við að prufa okkur áfram með streymi, bæði á facebook og instragram, svo verið endilega með þegar við fótum okkur áfram í þessu 😇 Þetta er tilraun til að vera með sameiginlega

Lesa meira

Fréttatilkynning vegna COVID-19 veirunnar

Messuhald og fermingar falla niður í vor vegna samkomubanns. Í samhljóðan við ákvörðun stjórnvalda sem kynnt var á upplýsingafundi forsætisráðherra rétt í þessu (föstudaginn 13. mars) um samkomubann vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar hefur biskup Íslands sent út eftirfarandi tilkynningu. Allt messuhald og vorfermingar falla niður í Þjóðkirkjunni. Ákvörðunin er tekin með almannaheill í huga og gildir á meðan samkomubann er

Lesa meira
« Eldri færslur Recent Entries »