Author Archives: Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur

Víst verður sunnudagaskóli

Í fyrramálið, sunnudaginn 22. mars fáum við að sjá splunkunýjan sunnudagaskóla. Hann birtist hér á kirkjan.is og áFacebooksíðum kirkjunnar og barnastarfsins. Stjórnendur sunnudagaskólans eru hjónin Regína Ósk og Svenni Þór auk Rebba og Gunnars Hrafns Sveinssonar. Við fáum líka að fylgjast með Nebba og Tófu. Deilum sunnudagaskólanum sem víðast. -MG- (Tekið af vef kirkjan.is)

Lesa meira

Stundaðu kyrrðarbæn til að ná jafnvægi og friðsæld

Kynning á kyrrðarbæn – sr. Guðrún Eggertsdóttir Hér kynnir sr. Guðrún grunnatriði í kristinni íhugun sem hefur verið mótuð á síðustu áratugum á grundvelli alda gamallrar trúarhefðar. Ef þú hefur spurningar um kyrrðarbænina má setja inn athugasemd og spurningar hér fyrir neðan. Bókin sem hún vísar í fæst hjá Skálholtsútgáfunni. Kynning hér fyrir neðan: Kyrrðarbænin (Centering Prayer) er víða stunduð

Lesa meira

Fréttatilkynning vegna COVID-19 veirunnar

Messuhald og fermingar falla niður í vor vegna samkomubanns. Í samhljóðan við ákvörðun stjórnvalda sem kynnt var á upplýsingafundi forsætisráðherra rétt í þessu (föstudaginn 13. mars) um samkomubann vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar hefur biskup Íslands sent út eftirfarandi tilkynningu. Allt messuhald og vorfermingar falla niður í Þjóðkirkjunni. Ákvörðunin er tekin með almannaheill í huga og gildir á meðan samkomubann er

Lesa meira

Málþingin verður frestað um óóakeðinn tíma. Þjóðkirkja á 21. öld. Ástand og horfur.

Stefán Magnússon, kirkjuþings og kirkjuráðsmaður, hefur haft frumkvæði að þessu málþingi en undanfarnar vikur hafa verið boðið til samræðna um framtíðarsýn kirkjunnar á biskupsstofu. Þær má kynna sér og hlusta á hér á vefnum. Stefán sendi frá sér eftirfarandi kynningu með hvatningu um að taka þátt í þessu samtali hér í héraði: Í ljósi þess að svokallað kirkjujarðasamkomulag hefur verið

Lesa meira

Hjálparstarf kirkjunnar – með þinni hjálp – kynning á 50 ára afmæli

Hér á eftir fer kynning á Hjálparstarfi kirkjunnar í tilefni af 50 ára afmæli þess. Hún gefur góða hugmynd um það mikilvæga starf sem er þáttur i starfi safnaðanna og ástæða til að vekja og hvetja safnaðarfólk að taka þátt í þessu starfi með fyrirbæn og gjöfum, en helst með þátttöku með því að gera það að þætti í safnaðarstarfi

Lesa meira

Samræður um framtíðarsýn kirkjunnar komnar á netið, fyrsti og annar fundur

Fram að kirkjuþing 2020 í mars verða umræðufundir með innleggjum um framtíðarsýn kirkjunnar. Það eru miklar breytingar framundan í átt til sjálfstæðis þjóðkirkjunnar. Það er svo sem ekki ný umræða. Á 19. öld voru mótaðar reglur í kristniboðsstarfi þar sem stefnt var að sjálfstæði kirknanna utan Evrópu, kallað þrjú-sjálf (Three selfs) reglan eða þrefalt sjálfstæði, stjórnunarlegt-, boðandi- og fjárhagslegt sjálfstæði.

Lesa meira

Kyrrðardegi á Möðruvöllum frestað um óákveðin tíma

Næsti kyrrðardagur verður 21. mars á Möðruvöllum Kyrrðardagar höfða til margra sem vilja stíga út úr skarkala hversdagsins og leita þess að styrkja samband sitt við Guð í kyrrð. Verð: 2.500 kr. Það er fyrir hádegismat og kaffitíma. Skráning er til 19 mars í síma 897 3302 eða gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is. ______________________________________________________ Kyrrð, íhugun, útivist og hvíld. ______________________________________________________ Dagskrá: Kl. 10.00     Kynning í Leikhúsinu.

Lesa meira

Kirkjan gegn kulnun – samvera í Glerárkirkju fim. 13. febrúar kl. 20

Kirkjan gegn streitu og kulnun: Samstarf Akureyrarkirkju, Glerárkirkju og Streituskóla Norðurlands. Fimmtudagskvöldið 13. febrúar í Glerárkirkju kl 20. Umfjöllunarefni: Máttur náttúrunnar gegn streitu, Helga Hrönn Óladóttir umdæmisstjóri Streituskóla Norðurlands fjallar um mátt náttúru og mataræðis gegn streitu. Kyrrðarbæn prestar : Hildur Eir og Stefanía Íhugunartónlist: Eyþór Ingi og Valmar. Enginn aðgangseyrir. Allir hjartanlega velkomnir.

Lesa meira
« Eldri færslur Recent Entries »