Kyrrðardagar höfða til margra sem vilja stíga út úr skarkala hversdagsins og leita þess að styrkja samband sitt við Guð í kyrrð.
Verð: 2.500 kr. Það er fyrir hádegismat og kaffitíma.
Skráning er til 19 mars í síma 897 3302 eða gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is.
______________________________________________________
Kyrrð, íhugun, útivist og hvíld.
______________________________________________________
Dagskrá:
Kl. 10.00 Kynning í Leikhúsinu.
Kl. 10:30 Gengið inn í kyrrðina. Íhugun í kirkju.
Kl. 12:00 Hádegisverður.
Kl. 13:00 Íhugun í kirkju.
Gönguferð – athuga að hafa með viðeigandi klæðnað og skó
Kl. 15:30 Íhugun í kirkju – þögnin rofin.
K. 16:00 Kaffi og mat á deginum í Leikhúsinu.
Kl. 17:00 Slit.
Til þátttakenda á kyrrðardegi.
Vinsamlega gætið þess að vera mætt tímanlega þar sem dagskrá og fyrirkomulag verður kynnt kl. 10.00 í Leikhúsinu. Þar bíður okkar kaffisopi og áður en gengið er í þögnina er farið yfir dagskrána og dagurinn undirbúinn. Þátttakendur geta nýtt sér aðstöðuna í leikhúsinu og kirkjunni til lestrar og/eða íhugunar á milli dagskrárliða.
Ef forföll verða vinsamlega látið sr. Guðmund vita í síma 897-3302.
Dagskrárliðir, aðrir en kynningin, eru valfrjálsir. Gætið þess að klæðast eftir veðri ef þið viljið taka þátt í gönguferðinni.
Að sjálfsögðu er einnig hægt að njóta útiveru hvenær sem er dagsins. Gott getur verið að hafa þunna dýnu og teppi meðferðis til að geta lagst útaf og breytt um stellingu.
Bækur um bæn og íhugun munu liggja frammi til skoðunar ef vill.
Hlökkum til að sjá ykkur
Guðmundur Guðmundsson, Aníta Jónsdóttir og Sigríður Halldórsdóttir.
Myndir frá kyrrðardögum á Möðruvöllum…
Myndbönd: Kynning á kyrrðarbæn – sr. Guðrún Eggertsdóttir