Category Archives: Helgihald

Kyrrðardegi á Möðruvöllum frestað um óákveðin tíma

Næsti kyrrðardagur verður 21. mars á Möðruvöllum Kyrrðardagar höfða til margra sem vilja stíga út úr skarkala hversdagsins og leita þess að styrkja samband sitt við Guð í kyrrð. Verð: 2.500 kr. Það er fyrir hádegismat og kaffitíma. Skráning er til 19 mars í síma 897 3302 eða gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is. ______________________________________________________ Kyrrð, íhugun, útivist og hvíld. ______________________________________________________ Dagskrá: Kl. 10.00     Kynning í Leikhúsinu.

Lesa meira

Kirkjan gegn kulnun, Akureyrarkirkja fimmtudaginn 23. jan. kl. 20

Kirkjan gegn kulnun og streitu fimmtudagskvöldið 23. janúar kl 20.00. Samstarf Akureyrarkirkju, Glerárkirkju og Streituskóla Norðurlands. Sigraðu streituna. Munurinn á streitu og kulnun, leiðir til lausna. Helga Hrönn Óladóttir, umdæmisstjóri Streituskólans og Streitumóttökunnar á Norðurlandi flytur erindi. Kyrrðarbæn í umsjón sr.  Hildar Eirar Bolladóttur og sr. Stefaníu Steinsdóttur. Íhugunartónlist: Valmar Väljaots. Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Lesa meira

Helgihald í Akureyrarkirkju um jól

AKUREYRARKIRKJA UM JÓL 4. sunnudagur í aðventu 22. desember Helgistund í kapellu Akureyrarkirkju kl. 11.00. Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Aðfangadagur 24. desember Aftansöngur í Akureyrarkirkju kl. 18.00. Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir. Jakobskórinn og sönghópurinn Synkópa syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Miðnæturmessa í Akureyrarkirkju kl. 23.30. Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Klassíski kór

Lesa meira

Helgihald um jól í Glerárkirkju

Mánudagurinn 24. desember – Aðfangadagur jóla ✯ Aftansöngur kl. 18:00 Séra Gunnlaugur Garðarsson þjónar fyrir altari. Séra Stefanía Steinsdóttir predikar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. ✯ Miðnæturmessa kl. 23:00 Séra Stefanía Steinsdóttir leiðir stundina. Valmar Väljaots spilar ásamt söngvara. 25. desember – Jóladagur ✯ Hátíðarmessa kl. 11:00 Séra Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn

Lesa meira

Aðventuhátíð barnanna í Akureyrarkirkju sunnudaginn 8. desember kl. 11:00

Verið öll velkomin á aðventuhátíð barnanna í Akureyrarkirkju næsta sunnudag. Mikið verður um jólasöngva þar sem yngri barnakór mun taka nokkur lög. Einnig ætla strengjanemendur úr Tónlistarskólanum á Akureyri að koma framm undir stjórn Eydísar Úlfarsdóttur.  Jólaguðspjallið verður flutt í máli og myndum. Í lok stundar verður engillinn Gabríel með óvænta gjöf handa börnunum. sr. Hildur Eir, Sonja æskulýðsfulltrúi og

Lesa meira

Kvöldmessa í Glerárkirkja 8. des. kl. 20

Sr. Guðmundur Guðmundsson og sr. Sindri Geir Óskarsson þjóna. Kór Glerárkirkju leiðir sögn undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur organista. Allir hjartanlega velkomnir. Sindri Geir verður boðinn velkominn til þjónustu í héraðinu með sérstaka þjónustu við Sjúkrahúsið á Akureyri og til afleysinga í prestaköllunum á svæðinu. Tónlistin verður viðeigandi með rólegri kvöldstemmingu. Það verður gott að njóta kyrrðarinnar í kirkjunni og

Lesa meira

Messa í Akureyrarkirkju 10. nóv. kl. 11 á kristniboðsdegi – vinasöfnuður í Afríku

Kristniboðsdagurinn Messa í Akureyrarkirkju kl. 11.00. Prestur er sr. Guðmundur Guðmundsson. Hann mun fjalla um vinasöfnuðina í Kapkoris og sýna muni frá Afríki. Halla Ólöf Jónsdóttir og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Tekið verður við samskotum fyrir vinasöfnuð okkar í Kapkoris í Keníu. Sunnudagskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11.00. Umsjón Tinna Hermannsdóttir og Sigríður Hulda Arnardóttir.

Lesa meira
« Eldri færslur Recent Entries »