Helgihald um jól í Glerárkirkju

Mánudagurinn 24. desember – Aðfangadagur jóla
✯ Aftansöngur kl. 18:00
Séra Gunnlaugur Garðarsson þjónar fyrir altari.
Séra Stefanía Steinsdóttir predikar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots.
✯ Miðnæturmessa kl. 23:00
Séra Stefanía Steinsdóttir leiðir stundina. Valmar Väljaots spilar ásamt söngvara.
25. desember – Jóladagur
✯ Hátíðarmessa kl. 11:00
Séra Gunnlaugur Garðarsson þjónar.
Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots.
✯ Hátíðarguðsþjónusta á Lögmannshlíð kl. 14:00. Séra Gunnlaugur Garðarsson þjónar.
Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots.
26. desember – Annar í jólum
✯ Fjölskylduguðsþjónusta kl. 13:00
Sunna Kristrún djákni leiðir stundina ásamt leiðtogum. Barna- og Æskulýðskór Glerárkirkju syngur undir stjórn Margrétar Árnadóttur.
1. janúar – Nýársdagur
✯ Hátíðarmessa kl. 14:00
Séra Gunnlaugur Garðarsson þjónar.
Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots.
5. janúar – Þrettándamessa
✯ Jólin kvödd kl. 11:00
Séra Gunnlaugur Garðarsson þjónar.
Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots.