Category Archives: Akureyrarprestakall

Ragnar Gunnarsson, kristniboði, segir frá vinasöfnuðum Akureyrarkirkju í Kapkoris í Keníu messu í Akureyrarkirkju 11. nóv. kl. 11

Messa í Akureyrarkirkju kl. 11.0 – Krisniboðsdagurinn  Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra kristniboðssambanda prédikar og segir frá starfinu í Kapkoris í Keníu. Tekið verður við samskopum. Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Kammerkórinn Hymnodia syngur. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Nánari upplýsingar um heimsókn Ragnars í tengslum við kristniboðsdaginn. Á myndinn eru Séra Paul Lyomo, séra Francis Kamondich og séra Ragnar

Lesa meira

Fjölskylduguðsþjónusta og bleik messa í Akureyrarkirkju 14. okt.

Fjölskylduguðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 11.00. Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur. Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Bleik messa í Akureyrarkirkju kl. 20.00. Kvennakór Akureyrar ásamt Þórhildi Örvarsdóttur og Valmari Väljaots flytja lög Arethu Franklin. Stjórnandi Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Hugleiðingu flytja Regína Óladóttir sálfræðingur og Heimir Haraldsson náms og starfsráðgjafi. Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir. Tekið verður

Lesa meira

Hvítasunnuhelgin í Akureyrarkirkju

Hvítasunnuhelgin í Akureyrarkirkju Laugardagur 19. maí Fermingarmessa í Akureyrarkirkju kl. 10.30. Prestar eru sr. Svavar Alfreð Jónsson og sr. Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.Hvítasunnudagur 20. maí Fermingarmessa í Akureyrarkirkju kl. 10.30 og 13.30. Prestar eru sr. Svavar Alfreð Jónsson og sr. Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór

Lesa meira

Helgihald í Akureyrarkirkju í dymbilviku og á páskum

Skírdagur 29. mars Kyrrðarstund og lestur Passíusálma í Akureyrarkirkju kl. 12.00-14.00. Prestur er sr. Guðmundur Guðmundsson. Lesari Halldór Hauksson. Föstudagurinn langi 30. mars Kyrrðarstund við krossinn í Akureyrarkirkju kl. 21.00. Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Páskadagur 1. apríl Hátíðarmessa í Akureyrarkirkju kl. 8.00. Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson.

Lesa meira

Eurosvision-messa í Akureyrarkirkju 11. feb. kl. 11

Hin árlega júróvisjónmessa verður haldin í Akureyrarkirkju næstkomandi sunnudagsmorgunn kl 11:00. Halla Ingvarsdóttir júróspekúlant fjallar um trúar- og friðarboðskap í júróvísjónlögum. Elvý Hreins, Birkir Blær og Eyþór Ingi flytja allskonar lög úr keppninni, gömul og ný, íslensk og erlend meðal annars frá Noregi, Hollandi, Portúgal og Íslandi. Séra Hildur Eir leiðir stundina. Sjáumst í kirkjunni á sunnudaginn.

Lesa meira

Akureyrarprestakall – 4. febrúar

Fjölskylduguðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 11.00. Yngri barnakór Akureyrarkirkju syngur. Biblíusaga, söngur og gleði. Umsjón sr. Sunna Dóra Möller, Hjalti Jónsson, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Fanney Kristjáns Snjólaugsdóttir. Æðruleysismessa í Akureyrarkirkju kl. 20.00. 20 ára afmæli. Kær og kunnugleg andlit úr tuttugu ára sögu messunnar leiða helgihald og tónlist. Veitingar í Safnaðarheimili að messu lokinni. Nánari upplýsingar um barna- og æskulýðsstarfið

Lesa meira

Kirkjan mætir kvíða

Kirkjan mætir kvíða – bænaslökun í Akureyrarkirkju á mánudögum kl. 20.00. Stundin er 45 mínútur. Sr. Hildur Eir Bolladóttir talar um trú sem bjargráð við kvíða og Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir jógakennari leiðir Gongslökun. Viðstaddir velja um að sitja á kirkjubekkjum eða liggja á gólfi en þá er gott að taka með sér dýnu að heiman. Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.

Lesa meira
« Eldri færslur Recent Entries »