Fasta

fasta fyrir umhverfið_bordiÞá er Fasta fyrir umhverfið komið á netið. Það er 40 daga áskorun um að draga úr vistsporinu og eiga umhverfisvænni hversdag.

Hugmyndin

Leystu eitt lítið verkefni á dag frá öskudegi fram á páskadag tengt ólíkum þemum, m.a. neyslu, mataræði og plastsóun. Sköpum okkur nýjar og umhverfisvænni venjur!

Til að ná að standa við Parísarsamkomulagið þurfum við öll að leggja okkar að mörkum fyrir plánetuna.

Hægt er að fylgjast með og taka þátt í verkefninu er á facebook.com/fastafyrirumhverfid og hér að þessari síðu á www.eything.com/fasta.

Tilefnið

Það er sjálfboðavinna kirkjufólks sem er áhugasamt um umhverfisstarf sem lítur hér dagsins ljós.  Hér er búið að þýða og staðfæra dagatal fyrir föstuna þar sem fólk leysir lítil verkefni á hverjum degi og vinnur þannig að því að eiga umhverfisvænni hversdag. EcoFast og CarbonLent eru fyrirbæri sem systurkirkjur okkar um allan heim hafa verið að stunda – nú er komið að okkur.

Dagatalið – 40 dagarnir – 14. febrúar – 25. mars

Hér er föstudagatalið aðgengilegt til niðuhals og útprentunar, passið að prenta báðumegin á blaðið til að nýta pappírinn. Verkefni hvers dags birtast líka á facebook síðunni en gott er að hafa dagatalið heimavið til áminningar.

Sækja dagatalið

Fræðslu- og umræðukvöld í Glerárkirkju
– Drögum úr vistspori okkar og verndum jörðina

Þá verða fræðslukvöldin í Glerárkirkju helguð föstu fyrir umhverfið og geta þeir sem vilja stuðning við föstuna sótt þau á miðvikudagskvöldum kl. 20 frá og með öskudegi fram að dymbilviku.

N4Dagskrafinal

Auglýsing á Pdf-formi

Innleiðsla í verkefnið: Fasta fyrir umhverfið

Fyrsta kvöldið í Glerárkirkju 14. febrúar var Sindri Geir Óskarsson, guðfræðingur, með innleiðslu í verkefnið. Hér er upptaka af erindi hans.

Fansarnir tveir – Frans frá Asissi og Frans páfi um umhverfismál

Innlegg Sindra Geirs Óskarssonar, guðfræðings:

Hulda B. Waage og Johanna Madsen ræða við Sidra Geir um veganisma

Samtal um umhverfislegan ávinning veganismann:

Um 12 sporin og keltneska íhugun og umhverfið

Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir: Geta 12 sporin stutt okkur í því að ganga betur um jörðina:

Sindri Geir Óskarsson fjallar um keltneska kristni og föstu fyrir umhverfið:

Loftslagsbreytingar og lifríki sjávar

Árni Finnsson hjá Náttúrverndarsamtökum Íslands: Áhrif loftslagsbreytinga á hafijð og lífið í sjónum:

Guð og gróðurhúsaáhrifin

Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir fjallar um siðfræði umhverfisumræðunnar