Category Archives: Helgihald

Kirkjan mætir kvíða

Kirkjan mætir kvíða – bænaslökun í Akureyrarkirkju á mánudögum kl. 20.00. Stundin er 45 mínútur. Sr. Hildur Eir Bolladóttir talar um trú sem bjargráð við kvíða og Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir jógakennari leiðir Gongslökun. Viðstaddir velja um að sitja á kirkjubekkjum eða liggja á gólfi en þá er gott að taka með sér dýnu að heiman. Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.

Lesa meira

Guðsþjónustur á Dalvík kl. 11 og Glæsibæ kl. 14 þann 8. okt.

Guðsþjónusta og sunnudagskóli verður í Dalvíkurkirkju kl. 11, sameiginlegt upphaf í kirkjunni. Eydís Ösp Eyþórsdóttir annast sunnudagsskólan. Sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur, þjónar. Fluttur verður siðbótarsálmurinn: Drottinn, þinna krafta’ og kærleiks nýt ég, í þýðingu Guðmundar. Í ræðunni mun hann tala gegn stríði út frá lexíu dagsins og íslensku myndinni Undir trénu: Hættið að gera illt, lærið að gera gott, leitið

Lesa meira

Bleik messa í Akureyrarkirkju 8. okt. kl. 20

Hin árlega Bleika messa verður haldin í Akureyrarkirkju næstkomandi sunnudagskvöld 8. október kl 20:00. Lára Sóley, Hjalti Jóns, Sigrún Magna og Kvennakór Akureyrar flytja fagra tóna. Katrín Ösp Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur á krabbameinsdeild SAK og Dóróthea Jónsdóttir tölvunarfræðingur sem á reynslu af brjóstakrabba, flytja hugleiðingar. Í ár verður tekið við samskotum til styrktar Minningarsjóði Heimahlynningar Akureyrar og nágrennis. Prestur séra Hildur

Lesa meira
« Eldri færslur Recent Entries »