Category Archives: Helgihald

Guðsþjónusta í Dalvíkurkirkju 17. sept. kl. 20

Guðþjónusta verður haldin í Dalvíkurkirkju kl. 20.00 næstkomandi sunnudagskvöld, 17. september.  Sr. Magnús þjónar fyrir altari og kórinn okkar syngur undir styrkri stjórn Páls Barna Szabo. Fermingarbörn og forráðafólk þeirra er vinsamlegast beðið um að mæta og eiga fund með sóknarpresti að lokinni stundinni.

Lesa meira

Upphaf vetrarstarfsins í Akureyrarkirkju 17. sept. kl. 11

Fyrsti sunnudagaskóli vetrarins í Akureyrarkirkju hefst með fjölskyldumessu kl. 11.00. Biblíusaga, mikill söngur og Hafdís og Klemmi. Nýtt sunnudagaskólaefni afhent. Um sunnudagaskólann sjá sr. Sunna Dóra Möller og Hjalti Jónsson. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson og félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Léttar veitingar í Safnaðarheimilinu að stund lokinni. Fjölmennum í sunnudagaskólann og tökum þátt í skemmtilegu og uppbyggilegu starfi á

Lesa meira

Þú ert þýðingarmikil(l), kyrrðar- og tónlistarstund í Ólafsfjarðarkirkju 10. sept. kl. 20

Þú ert þýðingarmikil – Þú ert þýðingarmikill. Í tilefni alþjóðadags sjálfsvígsforvarna, sunnudaginn 10. september 2017 verður kyrrðar- og tónlistardagskrá í Ólafsfjarðarkirkju kl. 20:00 Fimmtán söngvarar og hljóðfæraleikarar af Tröllaskaga koma fram og gefa vinnu sína. Hugleiðing og reynslusaga. Í lok stundarinnar munum við mynda kærleikshring til að minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Enginn aðgangseyrir. Friðarkerti Hjálparstarfs kirkjunnar

Lesa meira

Minningarstund á alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga í Akureyrarkirkju 10. sept. kl. 20

Á Alþjóðlega forvarnardegi sjálfsvíga er minningarstund um þau sem fallið hafa fyrir eigin hendi í Akureyrarkirkju kl. 20:00. Bænastund, sr. Svavar A. Jónsson. Reynslusaga, Guðfinna Hallgrímsdóttir og Sigurður Kristinsson. Tónlist og söngur, Eyþór Ingi Jónsson og Elvý G. Hreinsdóttir. Kveikt á kertum til minningar um þau látnu. Kaffi og spjall á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. Stjórn Samhygðar.

Lesa meira
« Eldri færslur Recent Entries »