Fjórar leiðir til að nálgas Guð – nú er hægt að hlusta á erindin á fræðslu- og umræðukvöld í Glerárkirkju sem voru í október 2024
Lestur, hugleiðsla, íhugun og bæn
Á síðustu áratugum hefur orðið mikil endurnýjun á alls konar andlegri iðkun bæði innan kirkju og í samfélaginu almennt. Fjölbreytileikinn er mikill. Bænaikun og hugleiðsla í klaustrum hefur verið gerð aðgengileg fyrir almenningi sem dæmi má nefna Kyrrðarbænina. Sumir hafa farið í ferðalag milli þessara hefða og ein þeirra er Anna Ramskov Laursen, prestur í Noregi, sem hefur skrifað bók um kynni sín af mismunandi aðferðum, Veier til helhet. Verður fjallað um nokkrar þeirra á námskeiðinu.
Erindin voru tekin upp og flutt á útvarpsstöðinni Lindinni. Hvert erindi og samtölin eru um hálftími að lengd.
Miðvikudaginn 9. október

Lestur – Lectio Divina – Andlegur lestur
Leiðbeinandi: María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir
Biblíuna er hægt að lesa á margan hátt sem sagnfræði eða bókmenntir en sú aðferð sem verður kynnt þetta kvöld snýst um að hlusta á Guð í bæn. Þetta er aldagömul hefð og stundum hefur verið talað um að “jortra” á orði Guðs og fara þannig með það út í daglegt líf. Lectio divina mætti þýða sem andlegan lestur. Einnig verður aðferð Ignatiusarhefðarinnar kynnt sem svipar til andlegs lesturs þar er áherslan á að lifa sig inn í textann með hugmyndarflugi. Jesúbænin er biblíuleg bæn sem einnig verður fjallað um.
Hér má hlusta á erindið:
Hér má hlusta á samtal Maríu og Guðmundar um andlegan lestur:
Miðvikudaginn 16. október

Hugleiðsla – Meditatio
– Heimfærsla á lífið
Leiðbeinandi: Guðmundur Guðmundsson
Annað kvöldið verður lögð áhersla á heimfærslu Guðs orðs á daglegt líf. Orðin hugleiðsla í kristinni trúarhefð hefur verið notað um að hugleiða orð Guðs og tileinka sér það meðan íhugun er meira orðalaust samband við Guð. Heilög þrenning er miklu meira en kenning í kristinni túarhefð. Íkon Rublevs er myndræn framsetning á hvernig þríeinn Guð býður fólki til samfélags við sig. Íkonin verður skoðaður með það í huga. Aðferðin sem verður kennd þetta kvöld er Bænaband Lönnebo, sem var sænskur biskup og listamaður. Það er hugleiðing sem rammar inn daglegt líf á hlutlægan hátt.
Hér má hlusta á erindið:
Miðvikudaginn 23. október

Íhugun – Contemplatio
– Innra líf
Leiðbeinandi: María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir
Þriðja kvöldið verður áhersla á innra líf. Hin orðlausa bæn er ein leið kristinnar íhugunar, þegar hugurinn hljóðnar og hjartað tekur við. Kyrrðarbænin, Centering Prayer, er sú leið sem hvað best hefur verið kynnt hérlendis síðustu árin. Hún miðar að því að leyfa nærveru Guðs að verka innra með okkur og býður upp á einfaldar leiðbeiningar sem hjálpa okkur á þeirri vegferð.
Miðvikudaginn 30. október

Bæn – Oratio – Bæn fyrir sjálfum sér og öðrum
Leiðbeinandi: Guðmundur Guðmundsson
Síðasta kvöldið verður áhersla á þjónustu við aðra. Þá verða aðferðirnar dregnar saman í meginatriðið að kristin bænaiðkun byggist á tengslum við Guð, menn og náttúru. Bæn er skilgreind sem ákall til Guðs í neyð en hefur að geyma aðra djúpar tilfinningar eins og gleði, angist og þakklæti. Í trausti til Guðs tengjast manneskjur Guði og Guð þeim. Skoðaðar verða bænir í sálmabókum, bænabókum og víðar sem sýna þessi tengsl og hvernig má rækta þau út af fyrir sig og með öðrum.
Hér má hlusta á erindið: