Hversdagshelgistund – kvöldganga við Lögmannshlíðarkirkju

Í sumar er sunnudagshelgihaldið hér á Akureyri sameiginlegt milli Akureyrarkirkju og Glerárkirkju og fer fram sunnan við á.
Hér í þorpinu verðum við með hversdagshelgihald á miðvikudagskvöldum og hvetjum ykkur til að gefa ykkur tíma í sumar til að koma við í kirkjunni og njóta góðrar stundar.

26. júní
Kvöldganga frá Lögmannshlíðarkirkju kl. 20:00. Njótum þess að koma saman í guðsgrænni náttúrunni.
Sr. Guðmundur Guðmundsson leiðir stundina og Arnar Yngvason segir frá yfirstandandi viðhaldsvinnu við Lögmannshlíðarkirkju.