Hversdagshelgistund í Glerárkirkju: Dægurlög og samskipti
Miðvikudaginn 19. júní kl. 20:00. Sr. Guðmundur Guðmundsson og Krossbandið leiða fallega guðsþjónustu. Guðmundur mun velta vöngum um tengsl við Guð, fólk og náttúruna í dægurlagatextum og andlegum vísum með aðstoð Krossbandsins sem syngur og spilar við guðsþjónustuna. Til að auka á fegurðina og lífsgleðina verða lögin myndskreytt og leitað í visku trúarinnar í guðspjallinu.
