helgistund frá Húsavíkurkirkju á 2. sunnudegi í föstu

Helgistund kemur frá Húsavíkurkirkju á 2. sunnudegi í föstu, þann 28. febrúar 2021. Sóknarprestur sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir leiðir stundina en sr. Jón Ármann Gíslason prófastur prédikar. Nýi organistinn Attila Szebik leikur á orgelið og stjórnaði Kór Húsavíkurkirkju. Hann spilaði í upphafi Praeludium III pro Organo Pleno in C-major eftir Krebs og í lokin How great is the mercy of God eftir Trajtler. Sungnir voru sálmarnir Leitið hans ríkis (nr. 834), Líður að dögun (nr. 703) og Megi gæfan þig geyma (nr. 893). Njótið vel.