Jóla-aðstoð 2018

Eins og undanfarið ár verður samstarf um jólaaðstoð milli Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð. Þannig er sótt um að hringt er í síma 570 4090 milli kl. 10:00 og 12:00 alla virka daga frá 26. – 30. nóvember. Bókað er viðtal þar sem fyllt er út umsókn og koma þarf með staðgreiðsluyfirlit frá skattinum. Um er að ræða kort sem nota má í verslunum til matarkaupa fyrir þá sem eiga lítið handa á milli.
Starfið hefst mánudaginn 26. nóvember. Hér með fylgir auglýsing sem birtist í Dagskránni miðvikudaginn 21. nóvember.
Framkvæmdin verður með eftirfarandi hætti.
Símatíma – bóka viðtal:
Eins og auglýst hefur verið þá hringir fólk í síma 570 4090 alla virka daga milli kl. 10-12 frá 26. – 30. nóvember. Þar er fólk minnt á að það þarf að hafa með sér staðgreiðsluyfirlit.
Viðtöl í húsi Einingar-Iðju Skipagötu 14, 2 hæð:
Þau verða alla virka daga kl. 13-16 á tímabilinu 28. nóvember og til og með 7. desember. Það þarf að koma með staðgreiðsluyfirlit frá skattinum og fylla út umsókn. Sá háttur verður hafður á að hringt er í þá sem fá ekki aðstoð.
Úthlutun í húsi Einingar-Iðju Skipagötu 14, 4 hæð:
Þau sem fá úthlutun sækja kortin þriðjudaginn 11. desember og miðvikudaginn 12. desember kl. 13-16. Auk þess fá umsækjendur úttektarkort fyrir föt og jólagjafir hjá Rauða krossinum á Akureyri, Viðjulundi 2 og Hertex Hjálpræðishersins, Hrísalundi 1b. Nánari upplýsingar verða afhent með úttektarkortum.