Stoppleikhúsið sýnir nýtt leikrit um Martein Lúther

Stoppleikhópurinn sýnir leikrit um Lúther í Glerárkirkju föstudaginn 10. nóv. kl. 20, Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 11. nóv. kl. 17 og í Akureyrarkirkju sunnudaginn 12. nóv. kl. 11.

Handrit og leikgerð er í umsjá Valgeirs Skagfjörðs og Stoppleikhópsins. Leikritið er sett upp sem farandsýning. Leikritið er ætlað fullorðnum og eldri börnum.

Fyrir tveimur árum lagði Stoppleikhópurinn upp með sýningu um sr. Hallgrím Pétursson eftir sama höfund sem farið hefur víða og hlotið mikið lof, en leikhópurinn vonast til að leikritið um Martein Lúther hljóti ekki síðri viðtökur.

Valgeir Skagfjörð leikstýrir verkinu og munu ásamt honum þau Eggert A. Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir fara með hlutverk í sýningunni.

Í verkinu skyggnist höfundur inn í æsku og uppvöxt Lúthers og reynir að varpa ljósi á það hvernig hann óx frá því að alast upp á fábrotnu alþýðuheimili upp í það að taka doktorspróf í guðfræði og setja fram gagnrýni á kaþólsku kirkjuna sem á þeim tíma þótti gjörsamlega óhugsandi. Þeir atburðir sem fylgdu í kjölfar þess að hann setti fram nýja sýn á kristna trú og inntak hennar urðu til þess að breyta viðhorfum alþýðufólks vítt og breytt um Evrópu og kristnum gildum til langframa.

Stopp_heilsida

Auglýsing á Pdf-formi