Kyrrðardagur á Möðruvöllum 11. nóvember

Kyrrðardagur á Möðruvöllum verður laugardaginn 11. nóvember kl. 10-16:15.

Kyrrðardagar höfða til margra sem vilja stíga út úr skarkala hversdagsins og leita þess að styrkja samband sitt við Guð í kyrrð.
Verð: 2000 kr.
Skráning í síðasta lagi fyrir hádegi fimmtudaginn 9. nóv. í síma 897 3302 eða gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is.

______________________________________________________

Kyrrð, íhugun, útivist og hvíld.

______________________________________________________

Dagskrá:

Kl. 10.00     Kynning í safnaðarheimilinu.

Kl. 10:30     Gengið inn í kyrðina. Íhugun í kirkju.

Kl. 12:00     Hádegisverður.

Kl. 13:00     Íhugun í kirkju.

Gönguferð – ath að hafa með viðeigandi klæðnað og skó

Kl. 15:15     Íhugun í kirkju – þögnin rofin.

K. 15:45      Kaffi og mat á deginum í safnaðarheimilinu.

Kl. 16:15    Slit.

 

Til þátttakenda á kyrrðardegi.

Vinsamlega gætið þess að vera mætt tímanlega þar sem dagskrá og fyrirkomulag verður kynnt kl. 10.00 í safnaðarheimilinu. Þar bíður okkar kaffisopi og þátttakendur geta skoðað svæðið. Þátttakendur geta nýtt sér aðstöðuna í safnaðarheimilinu og kirkjunni til lestrar og/eða íhugunar á milli dagskráliða.

Ef forföll verða vinsamlega látið sr. Guðmund vita í síma 897-3302.

Dagskrárliðir, aðrir en kynningin, eru valfrjálsir. Gætið þess að klæðast eftir veðri ef þið viljið taka þátt í gönguferðinni.

Að sjálfsögðu er einnig hægt að njóta útiveru hvenær sem er dagsins. Gott getur verið að hafa þunna dýnu og teppi meðferðis til að geta lagst útaf og breytt um stellingu.

Bækur um bæn og íhugun munu liggja frammi til skoðunar ef vill.

Hlökkum til að sjá ykkur

Guðmundur Guðmundsson og Guðrún Eggertsdóttir og Sigríður Munda Jónsdóttir.

 

Myndir frá fyrri kyrrðardögum á Möðruvöllum

Íhugunarstundirnar eru inni í kirkju þar sem setið er í hálfhring inn við altarið

Boðið er upp á matarmikla súpu og brauð og kaffi þannig að fólki líðið vel í kyrrðinni

Á meðan borðað er spilum við tónlist en neytum matarins í kyrrð
Þá er ágæt aðstaða til að sinna því sem fólk hugnast í Leikhúsinu.
Á efri hæðinni er aðstæður til að hvíla sig og
þar höfum við bækur um andleg efni fyrir þá sem það vilja. 

Farið er í gönguferð sem hefst með lestri úr Biblíunni og í áfangastað.
Þetta er stutt pílagrímaganga.

Umhverfið á Möðruvöllum er einstakt og ekki sakar að farið er að vora eða þannig.
Fólk getur stundað úti veru ef því hugnast það. 

Við höfum aðgang að kirkjunni þannig ef fólk vill getur það nýtt stundir þar til bæniðkunar
og íhugunar eða hvíldar í kyrrð á þeim helga stað.

 Þó undarlegt megi virðast skapast ágætt og gefandi samfélag í kyrrðinni.
Orð eru ekki allt, kyrrðin er gefandi og Guð nálægur.

Vertu velkomin(n) á kyrrðardaga