Siðbót í samtíð – fréttir og erindi af Hólahátíð 11.-13. ágúst 2017

500 ára siðbótarafmælis Marteins Lúthers verður minnst með óvenjulega veglegum hætti á Hólahátíð 11.-13. ágúst 2017.

Hátíðin hófst föstudaginn 11. ágúst sl. með listgjörningnum Tesur á Hólahátíð  í Auðunarstofu. Þar leiddu myndlistarlistakonurnar Guðrún Kristjánsdóttir og Ólöf Nordal gjörninginn. Gestum var boðið að semja og teikna sínar eigin “tesur” sem prentaðar voru með háprenti á pappír og síðan negldi hver og einn sína tesu á tréhurð í kirkjunni. Verkið á að minna á gjörninginn þegar Lúther negldi “tesurnar” 95 á kirkjudyr í Wittenberg og markaði þannig upphaf siðbótar í Evrópu.

Laugardaginn 12. ágúst kl.9:00 f.h. var svo pílagrímaganga eftir Hallgrímsveginum frá Gröf á Höfðaströnd heim að Hólum. Leiðin er 22 km. á jafnsléttu. Að göngu lokinni var sérstök athöfn, endurnýjun skírnarinnar og eftir hana er altarisganga í Hóladómkirkju. Þessar einfalda og fallega athöfn sem höfðuðu til persónulegrar upplifunar hvers og eins.

Sunnudaginn 13. ágúst var flutt tón-leikhús um tvær siðbótarkonur, þær Elísabetu Cruciger og Halldóru Guðbrandsdóttur í Hóladómkirkju. Elísabet var nunna sem snerist til hins nýja siðar og var eitt af fyrstu sálmaskáldum siðbótarinnar og samstarfskona Marteins Lúthers. Hún átti sálm í fyrstu sálmabók Lúthers og í fyrstu útgáfu Grallarans, messubók Guðbrands Þorlákssonar, biskups á Hólum. Halldóra var dóttir Guðbrands biskups og var fóstra Hallgríms Péturssonar og bústýra á Hólum með leyfi konungs í forföllum föður sins. Það voru þær Diljá Sigursveinsdóttir og Guðný Einarsdóttir sem settu leikhúsið saman með tónlist frá barokktímanaum í Þýskalandi og grallarasöng frá siðbótartímanum á Íslandi. Það er ReykjavíkBarokk sem flutti verkið, en fram koma 12 hljóðfæraleikarar, fjórir söngvarar og leikkona auk kirkjukóra Hofsóss- og Hólaprestakalls.

Á sunnudeginum var hátíðarmessa í Hóladómkirkju með þátttöku ReykjavíkBarokk. Í messunni var mag. theol. Stefanía Guðlaug Steinsdóttir vígð til prestsþjónustu í Lögmannshlíðarprestakalli. Eftir messuna var að venju veglegt veislukaffi í Hólaskóla.

viglsa_holum_20170813

Dagskránni lauk með hátíðasamkoma í Hóladómkirkju. ReykjavíkBarokk sá um tónlist og hátíðarræðu flutti sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir fyrsta konan sem hlaut prestsvígslu á Íslandi.