Sjómannadagur 11. júní í Akureyrarkirkju kl. 20

Sunnudaginn 11. júní er sjómannadagur. Paramessa verður í Akureyrarkirkju kl. 20:00. Sjómannshjónin Anna Birna Sæmundsdóttir og Brynjólfur Gunnarsson hugleiða hjónabandið. Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir flytja rómantísk sjómannalög í bland við annað. Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir.