Aðalfundur Akureyrarsóknar 7. maí kl. 12:30

Aðalsafnaðarfundur Akureyrarsóknar verður haldinn í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju sunnudaginn 7. maí kl. 12.30.
Dagskrá fundarins :
- Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári.
- Ársreikningar sóknarinnar lagðir fram til afgreiðslu.
- Gerð grein fyrir starfsemi Kirkjugarða Akureyrar fyrir síðastliðið ár.
- Greint frá starfsemi héraðsnefnda.
- Kosning.
- Önnur mál.
Á fundinum verður kosið í kjörnefnd Akureyrarsóknar.
Sóknarbörn eru hvött til að mæta.
Sóknarnefnd Akureyrarsóknar.