Sýningar á kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju

Nú stendur yfir ljósmyndasýning í Akureyrarkirkju, það eru meðlimir ÁLKA, áhugaljósmyndarklúbbur Akureyrar hafa verið að taka ljósmyndir af kirkjunni, listaverkum og hljóðfærum hennar í vetur. (Sjá facebook síðu Listvinafélagsins).

Laugardaginn 29. apríl verður listsýning nýbúa á Akureyri kl. 14 – 15.30.

Listsýning nýbúa á Akureyri

Fjöldi erlendra listamanna frá hinum ýmsu heimshornum sem búsettir eru á Akureyri koma fram og sýna listir sínar. Söngur, hljóðfæraleikur og dans frá ýmsum menningarheimum munu prýða þessa sýningu.

Fram koma:

* Daniele Basini, Gítarleikari frá Ítalíu
* Gert-Ott Kuldpärg, Saxafónleikari frá Eistlandi
* Juffe, Söngvari og gítarleikari frá Finnlandi
* Dansfélagið Vefarinn
* Adriana og Dimitrios, söng og gítarleikarar frá Grikklandi og Kúbu
* Paula Ahola, Píanóleikari frá Finnlandi

Sýningin verður í Safnaðarheimili kirkjunnar.

Aðgangur er ókeypis

Kirkjulistavika 2017 er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands Eystra, Norðurorku og Menningarsjóði Akureyrar (Af facebook síðu Listvinafélagsins).