Aðalsafnaðarfundur Lögmannshlíðarsóknar 2017 verður 30. apríl

Ljósmynd: Guðrún Sigurðardóttir, jan. 2010

Aðalsafnaðarfundur Lögmannshlíðarsóknar verður haldinn í Glerárkirkju sunnudaginn 30. apríl kl. 17:00

Fyrir utan hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt starfsreglum kirkjunnar, ber hæst kosning kjörnefndar en fyrir dyrum stendur að kjósa nýjan prest þegar sr. Jón Ómar Gunnarsson lætur af störfum. Það er gert samkvæmt starfsreglum um val og veitingu prestsembætta, sem lesa má hér.  Þau sem kunna að vilja gefa kost á sér til kjörnefndarstarfa mega gjarnan láta vita af sér með því að senda tölvupóst á glerarkirkja(hjá)glerarkirkja.is.

Dagskrá aðalsafnaðarfundar er sem hér segir:

  1. Starfsskýrslur og starfsáætlanir um safnaðarstarfið kynntar.
  2. Reikningar kirkjunnar fyrir liðið ár lagðir fram.
  3. Kosningar
  4. Önnur mál.

Rétt til fundarsetu eiga allir þeir sem búa í Lögmannshlíðarsókn og eru skráðir í Þjóðkirkjuna. Íbúar á Akureyri, norðan Glerár tilheyra Lögmannshlíðarsókn.

Verið velkomin.

Starfsreglur um sóknarnefndar má finna á slóðinni: hér

Samkvæmt nýjum reglum um val og veitingu prestsembætta kýs aðalsafnaðarfundur kjörnefnd, sem hefur það hlutverk að velja prest. Í kjörnefnd Glerárprestakalls eiga að sitja 17 aðalmenn og 11 varamenn, allt sóknarfólk 16 ára og eldri sem tilheyrir þjóðkirkjunni hefur rétt til að bjóða sig fram í kjörnefnd. Á aðalsafnaðarfundi þann 30. apríl á að kjósa í öll sæti aðal -og varamanna til 2019, hafir þú á huga á því að gefa kost á þér til kjörnefndarstarfa mátt þú gjarnan láta vita af þér og senda póst með upplýsingum á glerarkirkja(hjá)glerarkirkja.is.

Frekari upplýsingar veitir formaður sóknarnefndar Vilhjálmur G. Kristjánsson (villi(hjá)vma.is).

Íbúar á Akureyri, norðan Glerár sem tilheyra Lögmannshlíðarsókn og eru 16 ára og eldri geta boðið sig fram til starfa í kjörnefnd.

Upplýsingar um verkefni, kosningu og ábyrgð kjörnefndar má finna hér.