Erindi um samfélagsþróun og trúarlíf: Hvað er framundan?

Fyrsta fræðslukvöldið í vor 2017 var  1. mars kl. 20 undir yfirskriftinni Sístæð siðbót í nútímanum. Efni kvöldsins var Samfélagsþróunin og trúarlífið: Hvað er framundan? Í erindinu fór Rúnar Vilhjálmsson yfir stöðu og þróun trúarlífs í samfélaginu í ljósi hugmynda um nútímavæðingu og veraldarhyggju. Þá fjallaði hann um rannsóknir og niðurstöður um þróun trúarlífs á Íslandi og niðurstöður túlkaðar í ljósi fræðilegrar umræðu. Loks ræddi hann um framtíðarhorfur trúarlífs og trúarstofnana á Íslandi.

Rúnar Vilhjálmsson er prófessor í félagsfræði við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Helstu rannsóknarsvið Rúnars innan félagsfræðinnar eru heilsufélagsfræði, félagsfræði unglinga, og félagsfræði vísinda. Rúnar hefur meðal annars fengist við rannsóknir á geðheilbrigði fullorðinna, áhættuhegðun unglinga og árangri háskólamanna í kennslu og rannsóknum. Rúnar er núverandi formaður Félags prófessora við ríkisháskóla og stjórnarmaður í Hinu íslenska biblíufélagi.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s